Hönnun

með náttúruna að leiðarljósi

„Áhersla á birtu, útsýni og græn sameiginleg svæði“

„Jöfursbás 3 er nútímaleg og vel útfærð íbúðabyggð þar sem arkitektúr og náttúra mætast í jafnvægi.

Byggðin samanstendur af sjö punkthúsum sem raðast um lifandi stíg, með áherslu á birtu, útsýni og græn sameiginleg svæði.

Íbúðir eru bjartar og vel skipulagðar með sterka tengingu við umhverfið, á meðan inngangar eru aðlaðandi og taka vel á móti íbúum og gestum.

Hér verður til heildstætt og hlýlegt íbúðarumhverfi í nálægð við sjó og náttúru.“

Hjalti Brynjarson,
Nordic Office of Architecture

Útsýni til sjávar og fjalla

Leiðarljós við hönnun Jöfursbáss 3 var að nýta einstaka eiginleika svæðisins til fulls – sterka tengingu við náttúruna, nálægð við sjóinn og víðfeðmt útsýni til sjávar og fjalla. Markmiðið var að skapa byggð sem nýtir gæði svæðisins á markvissan hátt og styrkir tengsl við umhverfið á öllum stigum.

Sterk náttúrutengsl

Húsin og dvalarsvæðin

Húsin eru hönnuð sem punkthús. Þau eru lægst í suðri en hækka til norðurs til að tryggja gott aðgengi að dagsbirtu í íbúðum og á sameiginlegum svæðum. Uppröðun húsanna miðar að því að hámarka útsýni og tengingu við náttúruna. Milli þeirra myndast fjölbreytt dvalar- og torgsvæði sem hvetja til samveru og efla samfélag íbúa.

Samveru hvetjandi umhverfi

Stígakerfi sem hlykkjast á milli húsa

Verkefnið samanstendur af sjö húskroppum sem raða sér í kringum stíg sem myndar hryggjarstykki svæðisins. Stígurinn tengir byggðina við nærliggjandi umhverfi og skapar lifandi ás sem hvetur til hreyfingar, samveru og daglegs mannlífs.

Hönnuðir
Byggingaraðili
Landslagshönnuðir